Sjúkraþjálfari frá Netsjúkraþjálfun kemur til Ólafsvíkur á fimmtudaginn 25.mars.
Fyrirkomulag virkar þannig:
1. Viðkomandi bókar tíma í skoðun.
2. Skoðun er framkvæmd og er sú skoðun eins og hefðbundin skoðun hjá sjúkraþjálfara.
3. Viðkomandi fær sérsniðna endurhæfingaáætlun sem samanstendur af fræðslu, sérhæfðum æfingum og leiðbeiningum um nudd með nuddbolta / nuddrúllu.
4. Eftirfylgni í að minnsta kosti 4 vikur. Viðkomandi hefur greiðan aðgang að sjúkraþjálfara allan þennan tíma ásamt því að sjúkraþjálfari hefur reglulega samband við einstakling til að fylgjast með gangi mála og uppfæra endurhæfingaáætlun í takt við einkenni.
5. Við metum saman eftir þessar fjórar vikur hvort viðkomandi þurfi á framhaldi að halda, öðrum tíma hjá sjúkraþjálfara eða geti útskrifast.
Endurhæfingaáætlunina er hægt að opna í tölvu, smáforriti í snjallsíma og / eða prenta út, allt eftir hvað hentar hverjum og einum.
Skoðun á stofu, sérsniðin endurhæfingaáætlun og eftirfylgni í 4 vikur kostar 21.889 krónur.